VefsíðurAttention Abroad býður alhliða vefsíðugerð, útlitshönnun, textagerð, prófarkalestur, þýðingar, myndvinnslu, alþjóðlega markaðssetningu vefsíðna ásamt vefumsjón. GreiningTilgangur vefsetursins skiptir öllu máli. Við aðstoðum við að skilgreina tilgang vefsins og hvaða árangurs rekstaraðilar geta vænst af vefsetri sínu. Við greinum vefsetur og bendum á hvað þarf að laga til að hámarka þann árangur sem vefurinn gefur skilað. Þegar greiningin liggur fyrir getum við einnig gefið fast verðtilboð í þá vinnu sem í þarf að ráðast til að ná árangri mörkuðum utan landsteinanna.VefsíðugerðAttention Abroad tekur að sér alla verkþætti vefsíðugerðar. Við skilgreinum tilgang vefsins með verkakaupa, hönnun skipulag og útlit, skrifum texta, prófarkalesum, þýðum, tökum myndir, útvegum myndefni, sjáum um myndvinnslu, vefnaðinn sjálfan og gerum vefinn þannig úr garði að hann þjóni tilgangi sínum í einu og öllu.Þýðingar þjónustaVið þýðum texta yfir á öll helstu tungumál jarðar. Allir okkar þýðendur hafa viðkomandi tungumál að móðurmáli auk þess að hafa menntun í viðkomandi tungumáli. Flestallir Evrópubúar. fyrir utan Íslendinga, leita nær undantekningarlaust á sínu móðurmáli á vefnum. Til að þetta fólk geti fundið vefsíður þurfa þær og markaðssetningarpakki þeirra að vera á sama tungumáli og fólkið notað til að leita.Markaðssetning vefsíðnaVið breytum vefsetrum og vefsíðum þannig að hægt sé að koma þeim á framfæri. Við útbúum markaðssetningarpakka á hverja og eina vefsíðu. Við komum öllum síðum vefsins á framfæri á netinu, jafnt í leitarvélum sem utan þeirra. Við komum hvaða tungumáli sem er á framfæri við þá sem leita á því tungumáli á vefnum.VefumsjónEftir að vefsetur er komið í sitt endanlega form, hvað útlit, öll smáatriði og markaðssetningu varðar tökum við að okkur umsjón með síðunni jafnt hvað varðar efni hennar og markaðssetningu. Stjórnendur senda okkur tölvupóst með óskum um breytingar og við látum breytingarnar gerast, hratt vel og örugglega. |

















