StarfsemiAlþjóðleg markaðssetning vefsíðna og vefsetra er einn af hornsteinum starfseminnar hjá Attention Abroad. Við lögum til vefsetur og vefsíður og útbúum sérstaka markaðssetningarpakka fyrir hverja vefsíðu fyrir sig. Öllum síðum vefsins er síðan komið á framfæri á netinu, jafnt í stóru alþjóðlegu leitarvélunum sem leitarvélum innan hvers lands (og þá í langflestum tilfellum á móðumáli viðkomandi þjóðar) og á mörgum öðrum fjölsóttum stöðum á vefnum. Breytingar á vefsetrum og vefsíðum svo hægt sé að markaðssetja þær ásamt markaðssetningunni sjálfri er lykill velgengni í alþjóðlegri markaðssetningu. Tökum dæmi -- slóvenskt fyrirtæki vill ná athygli í Skandinavíu Slóvenskt fyrirtæki sem er nú þegar með vefsetur á slóvensku, ensku og þýsku vill koma vöru sinni eða þjónustu á framfæri í Skandinavíu (Noregi, Svíþjóð og Danmörku). Attention Abroad tekur að sér að breyta vefnum svo hægt sé að markaðssetja hann, tekur að sér að útbúa markaðssetningarpakka fyrir hverja og eina þá vefsíðu sem þegar er á vefnum. Tekur að sér að þýða vefsetrið í heild sinni yfir á norsku, sænsku og dönsku. Sér um markaðssetningu á öllum nýju vefsíðunum (þessum á norsku, sænsku og dönsku) á veraldarvefnum, jafnt í stóru leitarvélunum, í mest notuðu leitarvélunum innan hvers lands fyrir sig sem á öðrum stöðum þar sem hægt er að koma vefsetrum á framfæri en slíkir staðir eru fjölmargir. Þá getum við tekið að okkur að fylgja markaðssetningunni eftir með því að útbúa og senda bækling á valda aðila eða heimsækja valda aðila og kynna starfsemina. Tökum dæmi -- íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki vill ná athygli í Þýskalandi, Ítalíu og Króatíu Íslenskt fyrirtæki sem er nú þegar með vefsetur á ensku vill koma vöru sinni og þjónustu á framfæri í Þýskalandi, Ítaliu og Króatíu. Attention Abroad tekur að sér að breyta vefsetrinu svo hægt sé að markaðsetja það. tekur að sér að útbúa markaðssetningarpakka fyrir hverja og eina vefsíðu vefsetursins, Tekur að sér að þýða vefsetrið í heild yfir á þýsku, ítölsku og króatísku. Sér um að útbúa markaðssetningarpakka fyrir allar síður vefsins á þessum þrem tungumálum og sér um að koma vefsíðunm á framfæri, jafnt í stóru leitarvélunum sem "local" leitarvélum í hverju þessu þriggja landa og á öðrum stöðum sem henta til að koma viðkomandi á framfæri. Þá tökum við einnig að okkur beina markaðssetningu, kynningu á starfseminni fyrir utan netið. Í þeim tilfellum þar sem fyrirtæki vilja nota eigin netsérfræðinga í uppsetningu á vefsíðum veitum við ráðgjöf til að ná sem bestum árangri. Vinnum þá í náinni samvinnu til að hámarka árangur af vinnunni við að breyta vefnum og útbúa markaðssetningarpakka á vefsíðurnar. Sendum þá netsérfræðing fyrirtækisins þýðingarnar og hann setur þær upp. Attention Abroad sér svo um markaðssetninguna. Allir okkar viðskiptavinir fá einnig fullmarkaðssetta vefsíðu hér á vefsetri Attention Abroad. Við tökum að okkur umsjón vefsetra. Í hvert skipti sem stjórnendur fyrirtækisins vilja gera breytingar á vefnum senda þeir okkur upplýsingar þar um og örskömmu síðar verður breytingin að veruleika. Það er óþarfi að sitja uppi með úrelt og ómarkaðssett vefsetur. Attention Abroad tekur að sér umsjón og markaðssetningu vefsetra svo þau nái árangri og skili því sem þeim er ætlað ... og jafnvel gott betur. |

















