Af hverju?
Sérfræðingar Attention Abroad útbúa vefsetur frá grunni, hanna útlit þeirra, setja þau upp, sjá um textagerð, prófarkalestur, myndvinnslu, markaðssetningu og umsjón til framtíðar. Við höfum þá þekkingu sem þarf svo vefsetrið sé fyrirtækinu til sóma og nái árangri í því hlutverki sem því er ætlað. Vefsetur verða ætíð að falla í kramið hjá bæði leitarvélum og væntanlegum viðskiptavinum svo þær komi að gagni við alþjóðlega markaðssetningu.
MatAttention Abroad greinir vefsetur og vefsíður og bendir á þær breytingar sem þarf að gera til að ná árangri eða meiri árangri. Við greinum tilgang vefsins og til hvers er ætlast af honum. Við bendum á hvað þarf að gera svo sá árangur náist. KrækjurAttention Abroad aðstoðar við markaðssetningu vefsetra með því að tengja þær betur á vefnum. Vinna við krækjur skilar sér beint í aukinni umferð og sölu. Við getum tengt vefsetur þar sem tengingin kemur að gagni til að ná meiri árangri. Skráning í leitarvélarFæst vefsetur er hægt að skrá í leitarvélar því vefirnir eru þannig útbúnir að leitarvélarnar vilja ekkert með þá hafa og skráning skilar engu. Oftast þarf að breyta vefsíðum svo hægt sé að skrá þær og koma því sem á þeim er á framfæri. Þá þarf að útbúa sérstaka markaðssetningarpakka á hverja og eina síðu vefsins. Síðan þarf að skrá hverja og eina síðu í leitarvélar og aðra slíka staði þar sem fólk leitar upplýsinga en þessir staðir eru nær óteljandi á veraldarvefnum. Leitarvélar eins og Google eru þeir staðir þar sem flestir leita sér upplýsinga. Þar þarf að koma vefsíðum á framfæri og það á réttan hátt svo hægt sé að finna það sem viðkomandi vefsíða á að koma á framfæri. Það þarf gríðarlega sérþekkingu til að ná árangri við að koma vefsíðum á framfæri á netinu. AuglýsingarÞað má víða koma sér á framfæri á netinu með auglýsingum, jafnt innan leitarvélanna sem utan þeirra. En það skiptir miklu máli hver auglýsingin er og hvernig hún er. Við veitum ráðgjöf um auglýsingar á vefnum. |

















