Ert þú að leita að nýjum mörkuðum? Þjónusta Attention Abroad er góður valkostur fyrir þá sem eru að leita að nýjum mörkuðum. Við erum sérfræðingar í að ná athygli utan landsteinanna. Við markaðssetjum og seljum vörur og þjónustu milli landa og markaðssvæða. Engu skiptir hvert tungumálið er á því svæði sem ætlunin er að sækja á. Við tökum að okkur vefsíðugerð, ritstjórn vefsíðna, þýðingu vefsíðna yfir á ný tungumál, við markaðsetjum vefsíðum og látum þær finnast og ná árangri. Þá tökum við einnig að okkur verkefni í beinni markaðssetningu og sölu. Við getum hjálpað þér við að ná athygli utan landsteinanna og gert vörur þínar og/eða þjónustu sýnilega á nýjum markaðssvæðum. Við höfum yfir 20 ára reynslu af alþjóðlegri markaðssetningu og höfum sérhæft okkur í markaðsetningu vefsetra allt frá árinu 1995. |
|